Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 29. nóvember 2019 11:42
Elvar Geir Magnússon
Raggi Sig í úrvalsliði undankeppninnar
Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsvarnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson hefur verið valinn í sérstakt úrvalslið undankeppni Evrópumótsins.

Hann er þar í góðum félagsskap, eins og sjá má hér að neðan.

Liðið er sett saman eftir tölfræðiútreikningum en Ragnar hjálpaði íslenska landsliðinu að halda markinu hreinu í fimm leikjum í undankeppninni og þá skoraði hann tvö mörk.

Eins og allir vita er Ísland á leið í umspil í mars en þá kemur í ljós hvort liðið komist á sitt þriðja stórmót í röð.


Athugasemdir
banner
banner
banner