Wayne Rooney, markahæsti leikmaður í sögu Manchester United og enska landsliðsins, verður á bekknum hjá Derby County á Pride Park á morgun, laugardag.
Eftir 25 mörk í 52 leikjum með DC United í Bandaríkjunum er hinn 34 ára gamli Rooney kominn til Englands á nýjan leik.
Hann mun spila með Derby og vera í þjálfaraliði félagsins.
Hann má ekki byrja að spila fyrr en í janúar, en hann verður hluti af þjálfarateyminu á morgun.
„Það er gott að hann er kominn hingað og að stuðningsmennirnir geti séð hann. Við getum notað og notið góðs af reynslu hans," sagði Phillip Cocu, þjálfari Derby.
Derby er í 14. sæti Championship-deildarinnar, en liðið mætir QPR á morgun.
Delighted to have finally started with @dcfcofficial. Looking forward to the new challenge ahead 🙂🐏 #DCFC pic.twitter.com/BhdHV6ML0A
— Wayne Rooney (@WayneRooney) November 28, 2019
Athugasemdir