Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 29. desember 2017 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Hamsik tryggði dýrmæt stig
Mynd: Getty Images
Crotone 0 - 1 Napoli
0-1 Marek Hamsik ('17)

Marek Hamsik gerði eina mark leiksins er topplið Napoli hafði betur gegn fallbaráttuliði Crotone.

Vörn Crotone hélt gestunum vel í skefjum og fengu heimamenn nokkur færi til að jafna sem fóru forgörðum.

Gestirnir hefðu getað skorað nokkur mörk til viðbótar en eru vafalaust sáttir með þrjú stig í toppbaráttunni.

Napoli er með fjögurra stiga forystu á Juventus, sem heimsækir Verona annað kvöld. Crotone er í fallsæti, með 15 stig eftir 18 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner