sun 29. desember 2019 16:23
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Abraham: Jorginho breytti leiknum
Tammy Abraham.
Tammy Abraham.
Mynd: Getty Images
Tammy Abraham tryggði Chelsea dramatískan sigur á Arsenal fyrr í dag, lokatölur á Emirates 1-2.

Chelsea gekk illa að halda boltanum stóran hluta fyrri hálfleiksins, Frank Lampard gerði breytingu á sínu liði fyrir lok fyrri hálfleiks og setti Jorginho inn á og eftir það hélt Chelsea boltanum betur.

„Hrós til allra og sérstaklega Jorginho, þeir (Arsenal) voru með öll völd á miðjunni í fyrri hálfleik en Jorginho kom inn á og breytti leiknum, við héldum boltanum miklu betur eftir það. Hann (Jorginho) hafði mikil áhrif á leikinn og seinni hálfleikurinn var frábær," sagði Abraham sem hefur átt í erfiðleikum með að skora gegn hinum svokölluðu topp sex liðum.

„Ég vissi að það myndi koma að því að ég skoraði gegn topp sex liði og loksins náði ég því í dag," sagði Abraham að lokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner