Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 29. desember 2019 13:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Arteta: Pepe getur orðið frábær leikmaður
Nicolas Pepe.
Nicolas Pepe.
Mynd: Getty Images
Nicolas Pepe kom til Arsenal í sumar fyrir metfé, það er óhætt að segja að hann hafi ekki staðist væntingar hingað til.

Mikel Arteta sem tók við Arsenal á dögunum hefur mikla trú á kappanum og sýnir því skilning hversu erfiðlega það hefur gengið hjá Pepe að aðlagast enska fótboltanum.

„Það er klárlega erfitt að koma beint úr franska boltanum yfir í enska boltann. Það spilar einnig inn í að hann kom til liðs sem hefur ekki verið upp á sitt besta undanfarið, aðstæðurnar sem hann kom inn í gætu hafa verið betri, þetta er því ekki bara hans vandi."

„Við erum hér til að hjálpa honum. Ef hann er tilbúinn til að læra og leggja mikið á sig getur hann orðið frábær leikmaður," sagði Arteta.

Það er Lundúnaslagur á dagskránni í dag þegar Arsenal tekur á móti Chelsea, flautað verður til leiks klukkan 14:00.
Athugasemdir
banner
banner
banner