Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 29. desember 2019 20:02
Hafliði Breiðfjörð
Uppboð á málverki Tolla á Fótbolta.net - 560.000
Málverkið sem er á uppboði þetta árið. Það má skoða á Salatbarnum, Faxafen 9, Reykjavík.
Málverkið sem er á uppboði þetta árið. Það má skoða á Salatbarnum, Faxafen 9, Reykjavík.
Mynd: Aðsend
Fótbolti.net og listamaðurinn Tolli tóku höndum saman í desember eins og undanfarin ár og buðu upp málverk eftir Tolla hér á vefnum.

UPPBOÐINU LAUK 20:00. HÆSTA BOÐ SEM BARST FYRIR ÞAÐ VAR 560.000,-

Hæsta boð: 560.000,-

Málverkið í ár sem er 120 x 120 cm að stærð má sjá hér með fréttinni en áhugasamir lesendur geta séð Málverkið á Saltbarnum, Faxafen 9, Reykjavík.

Uppboðið stendur til 20:00 sunnudaginn 29. desember

Sendið upplýsingar um upphæð og nafn bjóðanda á netfangið [email protected].

Við uppfærum svo fréttina jafnóðum með hæsta boð en nöfn bjóðenda birtast ekki á vefnum. Lokadagur tilboða er sunnudaginn 29. desember klukkan 20:00.

Öll upphæðin mun renna til Bjartrar sýnar að þessu sinni. Björt sýn er styrktarfélag fyrir Ikhlaas munaðarleysingja heimilið í Oyugis, Kenía.

Þetta er fjórða árið í röð sem við stöndum fyrir þessu jólauppboði á málverki Tolla og öll árin rann öll upphæðin í gott málefni.
2018 ABC barnahjálp: 713.000
2017 Samhjálp: 682.000
2016 Fjölskylduhjálp Íslands: 620.000

Fótbolti.net er þakkláttur fyrir velvild Tolla með þessu samstarfi og mikil ánægja að geta látið gott af okkur leiða í jólamánuðinum.

Sem fyrr segir fær Björt sýn alla upphæðina. Smelltu hér til að kynna þér samtökin á Facebook síðu þeirra.
Athugasemdir
banner
banner
banner