Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. desember 2019 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leiðandi í dómaraútskýringum í Ástralíu - Viðtal við dómara
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Getty Images
Ástralía er leiðandi þegar kemur að útskýra dómaraákvarðanir að mati fjölmiðlamannsins Rob Harris.

Hann birtir tengil að mynbandi úr leik í áströlsku A-deildinni í morgun þar sem dómari tók þá ákvörðun að breyta gulu spjaldi í rautt eftir VAR-skoðun.

Í útsendingunni mátti hlusta á samskipti dómarans á vellinum við VAR-herbergið. Hann var beðinn um að fara og skoða atvikið á skjá á vellinum.

Á dögunum var svo tekið viðtal við dómara eftir leik í áströlsku A-deildinni. Þar fékk hann tækifæri til að útskýra ákvarðanir sínar.

Er það ekki eitthvað sem mætti taka upp á fleiri stöðum?



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner