Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 29. desember 2019 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool skoðar atvik á milli boltastráks og Jonny
Mynd: Getty Images
Liverpool er að skoða atvik á milli boltastráks og Jonny, leikmanns Wolves, í 1-0 sigri Liverpool á Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Liverpool er að skoða ásakanir um það að Spánverjinn hafi ýtt við boltastráknum er hann reyndi að ná til boltans fyrir framan Sir Kenny Dalglish stúkuna.

Talið er að Wolves viti af þessu en bíði frekari upplýsinga frá Liverpool.

Liverpool vann leikinn 1-0 og fer inn í nýja árið með 13 stiga forystu á næsta lið, Leicester.
Athugasemdir
banner
banner
banner