Markvörðurinn Bernd Leno gerði sig sekan um dýrkeypt mistök þegar Arsenal tapaði 2-1 fyrir Chelsea á heimavelli.
Arsenal leiddi 1-0 frá 13. mínútu, en á 83. mínútu jafnaði Jorginho fyrir Chelsea eftir að Leno greip í tómt. Tammy Abraham tryggði svo Chelsea sigur á 87. mínútu.
Hægt er að sjá mistökin sem Leno gerði hérna.
Stuðningsmenn Arsenal eru verulega ósáttir með Craig Pawson dómara og VAR. Jorginho, sem skoraði markið, átti líklega að fá sitt annað gula spjald er hann togaði Matteo Guendouzi, miðjumann Arsenal, niður áður en hann skoraði.
Það eru svona atriði sem fá mann til að þola ekki VAR. Sanngirnið er ekki meira. Klárt seinna gula á Jorginho sem skorar svo jöfnunarmark. Galið. #fotboltinet
— Daníel Geir Moritz (@DanelGeirMoritz) December 29, 2019
Athugasemdir