Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 29. desember 2019 10:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sky: Wolves vill fá Hwang frá Salzburg
Hwang Hee-Chan með Salzburg í leik gegn Liverpool í haust.
Hwang Hee-Chan með Salzburg í leik gegn Liverpool í haust.
Mynd: Getty Images
Sky Sports greindi frá því í gær að Wolves hafi áhuga á Hwang Hee-Chan leikmanni Salzburg í Austrríki.

Samkvæmt heimildum Sky vill Wolves fá leikmanninn í sínar raðir þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar, verðmiðinn á Hwang er talinn vera um 23 milljónir punda.

Þessi 23 ára gamli Suður-Kóreubúi skoraði þrjú mörk í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í haust, eitt þeirra kom á Anfield gegn Liverpool í október.

Wolves gæti þurft að berjast við önnur félög um Hwang því félög á Spáni, Ítalíu og Þýskalandi eru einnig sögð áhugasöm.

Athugasemdir
banner
banner