Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 29. desember 2020 16:15
Magnús Már Einarsson
Alonso á förum - Hélt upp á afmælið meðan Chelsea spilaði
Mynd: Getty Images
Marcos Alonso er á förum frá Chelsea í félagaskiptaglugganum í janúar en hann er ekki inn í myndinni hjá Frank Lampard, stjóra liðsins.

Alonso hefur ekki komið við sögu síðan í september en Lampard varð brjálaður út í hans hegðun í leik gegn WBA.

Alonso var tekinn af velli í hálfleik en hann horfði á síðari hálfleikinn í liðsrútu Chelsea í stað þess að mæta á bekkinn.

Í gær birti Alonso mynd af Instagram þar sem hann fagnaði þrítugs afmæli sínu heima á meðan Chelsea var að spila við Aston Villa.

Samkvæmt frétt The Indpendent er líklegast að Alonso fari til Atletico Madrid sem er á toppnum í spænsku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner