Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. desember 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Bale frá keppni næstu vikurnar
Mynd: Getty Images
Gareth Bale verður ekki með Tottenham næstu vikurnar vegna meiðsla á kálfa. Bale kom til Tottenham á láni frá Real Madrid í haust en hefur lítið náð að láta ljós sitt skína.

„Þetta eru ekki alvarleg meiðsli en ég segi nokkrar vikur," sagði Jose Mourinho, stjóri Tottenham, í dag.

Tottenham á sex leiki framundan þangað til 17. janúar og ólíklegt er að Bale komi við sögu í þeim.

Mourinho staðfesti einnig á fréttamannafundi í dag að Lucas Moura og Carlos Vinicius verði líklega ekki með gegn Fulham annað kvöld vegna meiðsla.

Tottenham hefur ekki unnið í fjórum leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni og er í 7. sæti eftir að hafa verið á toppnum fyrr í mánuðinum.
Athugasemdir
banner
banner