Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 29. desember 2020 21:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bielsa: Öll mörkin gerðu mig hamingjusaman
Mynd: Getty Images
Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, var hæstánægður eftir 5-0 sigur gegn West Brom í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

„Það mikilvægasta var að við nýttum færin vel. Venjulega er það erfitt fyrir okkur," sagði Bielsa.

„Við vorum með yfirburði og reyndum að búa til sem flest færi. Öll mörkin gerðu mig hamingjusaman."

„Við vorum með yfirburði í leiknum og gerðum fá mistök. Þeir gátu ekki nýtt sér neitt sem við gerðum vitlaust. Við sóttum látlaust og nýttum færin vel - það gefur jákvæða frammistöðu."

Leeds hélt hreinu annan leikinn í röð. Það gleður Bielsa. „Það er mikilvægt fyrir okkur því við erum búnir að fá á okkur of mikið af mörkum."
Athugasemdir
banner
banner