Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. desember 2020 23:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrirliði U23 liðs Man Utd gagnrýndi liðsfélaga á samfélagsmiðli
Teden Mengi.
Teden Mengi.
Mynd: Getty Images
Teden Mengi, fyrirliði U23 liðs Manchester United, gagnrýndi liðfélaga sinn Hannibal Mejbri á samfélagsmiðlinum Instagram eftir 6-1 tap gegn Chelsea fyrr í þessum mánuði.

Mejbri, sem er mjög efnilegur franskur leikmaður, deildi mynd á Instagram þar sem hann brosti með mótherja sínum, Pierre Ekwah.

Mengi var ekki sáttur og skrifaði við myndina hjá Mejbri: „Ástæðan fyrir því að við töpuðum, of margir vinir og ekki nægilega margir óvinir."

Mejbri svaraði og skrifaði: „Ég er ánægður að þú skrifaðir VIÐ." Var hann þar kannski að vísa til þess að varnarleikurinn var ekki nægilega góður í 6-1 tapinu. Mengi er miðvörður sem þykir nokkuð efnilegur.

Mengi vakti lukku á samfélagsmiðlum með þessum ummælum sínum.

U23 liði Man Utd hefur ekki gengið vel á þessari leiktíð og er í níunda sæti í sinni deild af 13 liðum.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner