Leikur Southampton og West Ham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld var ekki mjög tíðindamikill og endaði með markalausu jafntefli.
Það markverðasta í leiknum var líklega þegar Che Adams fékk þungt högg í byrjun leiks.
Craig Dawson, varnarmaður West Ham, ætlaði að hreinsa boltann en hitti ekki boltann. Hann sparkaði beint í Adams, en sem betur fer þá fór ekki illa.
Þrátt fyrir þetta þunga högg þá slasaðist Adams ekki og gat hann haldið leik áfram. Þetta var algjört slys og Dawson fékk ekki spjald fyrir þetta.
Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu.
Craig Dawson letting Che adams know he’s there early doors pic.twitter.com/cykDSOrVzs
— Liam (@Liam__whu) December 29, 2020
Athugasemdir