Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 29. desember 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Neymar gagnrýndur - Ætlar að halda risa nýárspartý
Mynd: Getty Images
Neymar, framherji PSG, hefur fengið mikla gagnrýni í heimalandi sínu Brasilíu fyrir að skipuleggja risa nýárspartý.

7,5 milljónir hafa smitast af kórónaveirunni í Brasilíu sem er þar með númer þrjú yfir lönd með flest smit í heiminum.

Um helgina bárust fréttir af því að Neymar ætlaði að halda fimm daga partý í vikunni og bjóða þangað 500 manns.

Í kjölfarið var Neymar gagnrýndur harðlega fyrir að virða ekki reglur í tengslum við kórónaveiruna.

Umboðsskrifstofa sem skipuleggur partýið tjáði sig við fjölmiðla í gær. Umboðsskrifstofan segir að 150 manns verði boðið og að farið verði eftir sóttvörnum á svæðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner