þri 29. desember 2020 22:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mörkin: Rashford skoraði í „Fergie time"
Allt það helsta úr leikjum dagsins
Rashford fagnar markinu.
Rashford fagnar markinu.
Mynd: Getty Images
Hinn góðhjartaði Marcus Rashford endaði ár þar sem hann hefur slegið í gegn, innan sem utan vallar, með því að skora sigurmark Manchester United gegn Wolves.

Markið skoraði Rashford í uppbótartíma. Það var heppnisstimpill yfir markinu, svona eins og yfir marki Jamie Vardy þegar hann jafnaði seint fyrir Leicester gegn Man Utd á dögunum.

Markið má sjá hér neðst í fréttinni ásamt tilþrifum úr öðrum leikjum kvöldsins. Mörkin voru upprunalega birt á vef Morgunblaðsins. Síminn Sport sýnir leiki ensku úrvalsdeildarinnar hér á landi.

Á samfélagsmiðlum er mikið talað um „Fergie time" í tengslum við mark Rashford en þá er verið að vitna í forna tíð þegar Man Utd vann oftar en ekki leiki á þennan hátt, með sigurmarki seint, undir stjórn Sir Alex Ferguson.

Man Utd er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir erkifjendum sínum í Liverpool.

Úrslit kvöldsins:
England: Dramatískur sigur Man Utd - Heppni í markinu
England: Saka gaf á Laca - Alltaf veisla hjá Leeds

Man Utd 1 - 0 Wolves


West Brom 0 - 5 Leeds


Burnley 1 - 0 Sheffield United


Southampton 0 - 0 West Ham


Arsenal 1 - 0 Brighton



Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner