Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 29. desember 2020 18:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu skelfilegt sjálfsmark hjá leikmanni West Brom
Ekki gott hjá þessum.
Ekki gott hjá þessum.
Mynd: Getty Images
Lærisveinar Sam Allardyce í West Brom eru að tapa fyrir Leeds í leik sem núna stendur yfir í ensku úrvalsdeildinni.

West Brom lenti undir með sjálfsmarki frá varnarmanninum Romaine Sawyers.

Sjálfsmarkið var afar óheppilegt og Stóri Sam er væntanlega allt annað en glaður með það.

Sawyers ætlaði að senda til baka á markvörðinn Sam Johnstone, en leit ekki aftur fyrir sig. Hann sendi ekki á Johnstone, heldur sendi hann boltann beint í eigið net.

Markið má sjá með því að smella hérna.

West Brom hefur ekki efni á að gefa svona mark þar sem liðið er í fallsæti.
Athugasemdir
banner