Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 29. desember 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Sutton: Krísa hjá Chelsea
Frank Lampard stjóri Chelsea.
Frank Lampard stjóri Chelsea.
Mynd: Getty Images
Chris Sutton, fyrrum framherji Chelsea, segir að staða Frank Lampard hjá félaginu geti orðið ljót ef gengi liðsins fer ekki að batna á næstunni.

Chelsea hefur einungis náð í fjögur stig í síðustu fimm leikjum og er komið niður í sjötta sæti í ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-1 jafntefli gegn Aston Villa í gær.

„Í augnablikinu er krísa hjá félaginu því þeir eru ekki að standa sig nógu vel. Spilamennskan er flöt hjá þeim og þess vegna þarf Frank að ná nokkrum sigrum eins fljótt og hann getur því annars getur þetta orðið ljótt hjá Chelsea," sagði Sutton.

Lampard er á öðru tímabili sínu sem stjóri Chelsea en hann eyddi yfir 200 milljónum punda í nýja leikmenn í sumar.

„Hvort sem honum líkar það betur eða verr þá er þetta allt öðruvísi tímabil fyrir Frank. Pressan er á honum, hann hefur eytt háum fjárhæðum. Núna mun pressan aukast," sagði Sutton

„Ég vil ekki dæma Chelsea og Frank of snemma því þeir gætu unnið þrjá í röð, komist í annað sætið og við myndum segja 'geta þeir unnið titilinn?' Ég held hins vegar að Chelsea geti ekki unnið titilinn."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner