Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 29. desember 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Wilshere æfir með Bournemouth - Skoðar næsta skref
Mynd: Getty Images
Jack Wilshere er byrjaður að æfa með Bournemouth til að halda sér í formi á meðan hann leitar að nýju félagi.

Hinn 28 ára gamli Wilshere yfirgaf herbúðir West Ham í haust.

Hann hefur átt í viðræðum við nokkur félög í Evrópu undanfarnar vikur.

Wilshere var á láni hjá Bournemouth fyrir fjórum árum og fékk leyfi hjá félaginu til að hefja æfingar þar.

Jason Tindall, stjóri Bournemouth, segir að engar viðræður hafi átt sér stað um að semja við Wilshere en félagið ætli að sjá til hvað gerist í janúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner