Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. janúar 2020 17:45
Elvar Geir Magnússon
Bruno: Ást mín hófst þegar ég horfði á Ronaldo
Bruno skrifar undir.
Bruno skrifar undir.
Mynd: Manchester United
Portúgalski miðjumaðurinn Bruno Fernandes skrifaði í dag undir hjá Manchester United.

„Ást mín á Manchester United hófst fyrir alvöru þegar ég horfði á Cristiano Ronaldo spila. Alveg síðan hef ég verið mikill aðdáandi þessa magnaða félags," segir Fernandes við heimasíðu Manchester United.

„Það er ótrúleg tilfinning að vera orðinn leikmaður Manchester United. Ég hef unnið hart að því að komast þetta langt og ég get lofað stuðningsmönnum því að ég mun gefa allt fyrir merkið, til að liðið nái meiri árangri og fleiri titlum."

„Ég vil þakka Sporting fyrir allt sem félagið hefur gert fyrir mig. Þá vil ég þakka Ole og öllum hjá Manchester United fyrir traustið sem mér er sýnt. Ég get ekki beðið eftir því að borga til baka á vellinum."

Manchester United er í fmmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið mætir Úlfunum seinni part laugardags. Það gæti orðið fyrsti leikur Bruno Fernander fyrir liðið.
Athugasemdir
banner