Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 30. janúar 2020 12:50
Elvar Geir Magnússon
Carvalhal: Fernandes verður frábær fyrir Man Utd
Bruno Fernandes.
Bruno Fernandes.
Mynd: Getty Images
Carlos Carvalhal, fyrrum stjóri Sheffield Wednesday og Swansea, hefur tröllatrú á landa sínum Bruno Fernandes.

Fernandes er á Carrington æfingasvæðinu að ganga frá samningum við Manchester United.

„Hann er algjör toppleikmaður," segir Carvalhal sem nú stýrir liði Rio Ave í portúgölsku deildinni.

„Hann er í byrjunarliði portúgalska landsliðsins núna. Hann er leikmaður sem er algjörlega í öðrum gæðaflokki. Hann er besti leikmaður portúgölsku deildarinnar."

„Ég trúi því að Manchester United hafi náð í frábæran leikmann og að hann verði gríðarlega góður í enska boltanum."

„Hann mun aðlagast á fyrsta degi. Svona leikmaður þarf ekki tíma. Leikmenn í fremstu röð þarf ekki tíma til að aðlagast."

„Hann er þannig leikmaður að hann verður algjörlega búinn að aðlagast eftir nokkra daga, þið eigið eftir að sjá það."

Manchester United vonast til að Fernandes komi með aukinn sköpunarmátt á miðsvæðið.
Athugasemdir
banner
banner