Endurtekinn bikarleikur Liverpool og Shrewsbury, sem fram fer þann 4. febrúar, verður ekki sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpi.
Breska ríkissjónvarpið, sem er rétthafi keppninnar, hefur ákveðið að sýna frekar Oxford - Newcastle sem fram fer sama kvöld.
Liverpool og Shrewsbury gerðu 2-2 jafntefli á sunnudag og þurfa að mætast aftur. Sá leikur verður á Anfield.
Aðallið Liverpool verður í fríi á þessum tíma og mun varalið félagsins því spila leikinn.

Okkur gefst ekki kostur á að sýna leik Liverpool og Shrewsbury í FA Cup 4. febrúar.
— Stöð 2 Sport (@St2Sport) January 30, 2020
Af þeim leikjum sem eru á dagskrá það kvöld valdi BBC, rétthafi FA Cup í Bretlandi, að sýna Oxford - Newcastle. Aðrir leikir verða ekki framleiddir fyrir beina útsendingu sjónvarps.
Athugasemdir