Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. janúar 2020 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Messi fyrstur til að vinna 500 leiki
Mynd: Getty Images
Lionel Messi varð fyrr í kvöld fyrsti leikmaðurinn í sögu spænska boltans til að vinna 500 keppnisleiki með félagsliði.

Messi skoraði tvennu í auðveldum 5-0 sigri gegn Leganes sem tryggði Barcelona áfram í 8-liða úrslit spænska Konungsbikarsins.

Messi hefur unnið ótrúlegt magn titla á tíma sínum hjá Barcelona. Spænska bikarinn hefur hann unnið sex sinnum og spænsku deildina tíu sinnum.

Messi lék sinn fyrsta keppnisleik fyrir Barca 16. október 2004 í 0-1 sigri gegn nágrönnunum í Espanyol. Á þeim tíma var hann yngsti leikmaður í sögu Barca.

Messi er 32 ára gamall og hefur skorað 622 mörk í 710 keppnisleikjum fyrir Barca.


Athugasemdir
banner
banner