Valur 1 - 0 Fjölnir
1-0 Kaj Leo í Bartalsstovu ('52)
1-0 Kaj Leo í Bartalsstovu ('52)
Valur tók á móti Fjölni í seinni undanúrslitaleik kvöldsins í Reykjavíkurmótinu.
Patrick Pedersen klúðraði vítaspyrnu fyrir Val og var staðan markalaus þegar flautað var til leihklés.
Kaj Leo í Bartalsstovu skoraði snemma í síðari hálfleik og reyndist það eina mark leiksins.
Fyrrum Íslandsmeistarar Vals mæta þvi ríkjandi meisturum KR í úrslitaleik mótsins.
KR vann Reykjavíkurmótið í fyrra eftir 3-1 sigur gegn Fylki í úrslitaleik. Þar hafði KR betur gegn Val í eftirminnilegum undanúrslitaleik þar sem öll átta mörk leiksins voru skoruð í síðari hálfleik.
Athugasemdir