Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. janúar 2020 16:18
Elvar Geir Magnússon
Tottenham vill fyrirliða Southampton
Pierre-Emile Höjbjerg.
Pierre-Emile Höjbjerg.
Mynd: Getty Images
Sky greinir frá því að Tottennham ætli að reyna við Pierre-Emile Höjbjerg, fyrirliða Southampton, næsta sumar.

Þessi danski miðjumaður, sem er fyrrum leikmaður Bayern München, er einnig sagður á blaði hjá Arsenal og Everton.

Höjbjerg hefur ekki skrifað undir nýjan samning en gildandi samningur hans er til sumarsins 2021.

Höjbjerg hefur spilað mikilvægt hlutverk í uppgangi Southampton að undanförnu og stjórinn Ralph Hasenhuttl vill halda leikmanninum.

Hann hefur spilað 26 landsleiki fyrir Danmörku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner