Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 30. mars 2020 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Petit: Bruno er að gera það sem Pogba átti að gera
Hlakkar til að sjá þá spila saman
Bruno Fernandes hefur verið frábær hjá Manchester United.
Bruno Fernandes hefur verið frábær hjá Manchester United.
Mynd: Getty Images
Emmanuel Petit vill ólmur sjá þá Bruno Fernandes og Paul Pogba leika saman á miðjunni hjá Manchester United.

Bruno Fernandes kom til Rauðu djöflanna í janúar og hefur slegið í gegn hjá stuðningsmönnum á fyrstu vikum sínum hjá félaginu. Paul Pogba hefur verið frá keppni vegna meiðsla á þessu ári og á því enn eftir að spila með Portúgalanum.

Petit segir Fernandes vera gera það núna sem Pogba átti að gera og hrósar þar leiðtogahæfni Portúgalans sérstaklega.

„Fernandes hefur haft gríðarleg áhrif á leik liðsins, þegar litið er til baka yfir síðustu tvo mánuði þá er klárlega hægt að segja að kaupin á honum hafi verið þau bestu í janúar. Hann hefur haft svo mikil áhrif á allt að það mætti helst halda að hann hafi verið þarna síðustu sex árin," sagði Petit.

„Hann hefur breytt andanum að miklu leyti í búningsklefanum, það er erfitt að gera það á miðju tímabili. Paul Pogba átti að gera það sem hann er að gera þegar kemur að leiðtogahæfni inn á vellinum. Mig hlakkar til að sjá þá tvo saman inn á vellinum, hvort það gangi upp að spila þeim saman, mér finnst líklegt að það gangi upp," sagði Petit að lokum um Pogba og Fernandes.
Athugasemdir
banner
banner
banner