Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 30. mars 2021 11:37
Magnús Már Einarsson
Sævar Atli að semja við Breiðablik
Spilar með Leikni í sumar
Mynd: Haukur Gunnarsson
Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis, mun í dag skrifa undir samning hjá Breiðabliki.

Nokkur félög hafa reynt að krækja í Sævar Atla undanfarnar vikur en nú er ljóst að hann endar í Kópavogi.

Hinn tvítugi Sævar Atli er fyrirliði Leiknis en hann skoraði þrettán mörk og var í lykilhlutverki þegar liðið fór upp úr Lengjudeildinni í fyrra.

Sævar verður samningslaus eftir tímabilið en Breiðablik mun kaupa hann í sínar raðir.

Félagaskiptin ganga ekki í gegn fyrr en eftir tímabilið og því mun Sævar spila með nýliðum Leiknis í sumar áður en hann gengur formlega til liðs við Breiðablik í haust.

Athugasemdir
banner
banner
banner