Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. apríl 2020 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aguero: Messi áfram í Barcelona nema eitthvað ótrúlegt gerist
Aguero og Messi.
Aguero og Messi.
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero, leikmaður Manchester City, telur að Lionel Messi muni enda ferilinn hjá Barcelona.

Aguero og Messi eru liðsfélagar í argentíska landsliðinu.

Messi, sem er einn besti fótboltamaður sögunnar, hefur leikið með Barcelona allan sinn feril. Hann er 32 ára gamall og er núna á samningi til 2021. Messi, sem verður 31 árs í júní, hefur verið ósáttur með stjórnarmenn Barcelona og hefur hann verið orðaður við Manchester City og Inter á þessu ári.

Aguero telur hins vegar að Messi muni ekki fara neitt. Hann sagði í samtali við El Chiringuito TV: „Hann elskar félagið, honum líður vel og er ánægður."

„Nema eitthvað ótrúlegt gerist þá verður hann áfram hjá Barcelona."

Sjá einnig:
Gamla markið: Messi fíflaði leikmenn Getafe
Athugasemdir
banner
banner