Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 30. apríl 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Ndombele íhugar framtíð sína hjá Tottenham
Mynd: Getty Images
Tanguy Ndombele, miðjumaður Tottenham, er sagður vera að íhuga framtíð sína hjá félaginu.

Ndombele varð dýrasti leikmaðurinn í sögu Tottenham þegar félagið keypti hann frá Lyon á 55 milljónir punda í fyrrasumar.

Ndombele fékk mikla gagnrýni á nýliðnu tímabili og var meðal annars tekinn af velli í hálfleik gegn Burnley eftir dapra frammistöðu.

Barcelona hefur sýnt Ndombele áhuga og samkvæmt frétt Sky Sports er hann nú að skoða framtíð sína.

Mourinho ku þó vilja halda hinum 23 ára gamla Ndombele en Portúgalinn vonast til að leikmaðurinn nái að sýna betri hluta á næsa tímabili.
Athugasemdir
banner
banner