„Bara svona nokkuð sáttur. Það hefði verið auðvelt fyrir okkur að spila betur."
Sagði Orri Freyr Hjaltalín, þjálfari Þórs eftir 3-0 sigur liðsins á Magna í Mjólkurbikarnum í kvöld.
Sagði Orri Freyr Hjaltalín, þjálfari Þórs eftir 3-0 sigur liðsins á Magna í Mjólkurbikarnum í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór 3 - 0 Magni
Orri var spurður útí það hvað skóp sigur í dag.
„Við vorum með nokkuð mikið af vænlegum upphlaupum sem mér fannst að við hefðum geta nýtt aðeins betur í fyrri hálfleik. Við vorum heilt yfir mjög vinnusamir í leiknum og hlupum mikið. Ég myndi segja að þetta hafi verið iðnaðar dugnaðar sigur."
Jóhann Helgi Hannesson var ekki í hóp í dag. Orri var spurður hver staðan væri á honum.
„Hún er bara fín. Hann og Auðunn markmaðurinn okkar lentu saman haus í haus á miðvikudaginn og þurftu báðir smá aðhlynningu. Þeir verða væntanlega báðir klárir í næsta leik."
Að lokum var hann spurður hvenær, aðal framherji liðsins, Alvaro Montejo, yrði klár í slaginn.
„Hann er væntanlegur um helgina, þá er hann búinn að ljúka fimm daga sóttkví. Þannig hann verður að öllum líkindum klár í aðra umferð."
Athugasemdir