Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. apríl 2021 23:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rodgers: Pínu pirrandi - Erum í frábærri stöðu
Mynd: EPA
„Þetta er pínu pirrandi. Mér fannst við ekki gera nóg til að verðskulda sgurinn. Við erum venjulega góðir í stöðunni einum fleiri. Ég vil hrósa Southampton, þeir vörðust djúpt og voru þéttir en við erum vonsviknir," sagði Brendan Rodgers, stjóri Leicester, eftir jafntefli gegn Southampton í kvöld.

„Við vorum of hægiir og við fórum ekki upp í réttan hraða fyrr en við jöfnuðum. Ég get ekki tjáð mig um rauða spjaldið, þarf að sjá það aftur."

Leicester er með fimm stiga forskot á næsta lið og er í þriðja sætinu. Liðin fyrir neðan eiga þó leik til góða. Leicester vonast til að enda í Meistaradeildarsæti.

„Þegar við hittumst aftur á mánudag þá horfum við á þetta sem stig í áttina sem við viljum fara. Við eigum fjóra leiki eftir núna og erum í frábærri stöðu," sagði Rodgers.
Athugasemdir
banner
banner
banner