Síðari leikur Wolfsburg og Barcelona í undan úrslitum Meistaradeildar kvenna hefst kl 16 en Sveindís Jane Jónsdóttir er í byrjunarliði Wolfsburg rétt eins og í fyrri leiknum.
Þetta verður mjög erfitt verkefni fyrir Wolfsburg þar sem Barcelona sigraði fyrri leikinn með fimm mörkum gegn einu þar sem rúmlega 91 þúsund manns sáu liðin spila á Camp Nou.
Sveindís hefur komið vel inn í liðið sem er ásamt því að vera í undan úrslitum Meistaradeildarinnar, á toppi deildarinnar í Þýskalandi.
Síðari undan úrslitaleikurinn hefst kl 19 en það er viðureign PSG og Lyon þar sem Lyon er með 3-2 forystu eftir fyrri leikinn.
Athugasemdir