lau 30. apríl 2022 16:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikar kvenna: Nóg af mörkum - Öruggt hjá Völsung og Víking
Brynhildur Vala
Brynhildur Vala
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fimm leikjum er lokið í Mjólkurbikar kvenna í dag.


Víkingur valtaði yfir Fram en staðan var 4-0 í hálfleik. Christobel Oduro og Hulda Ösp Ágústsdóttir skoruðu fyrstu tvö mörkin. Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir og Brynhildur Vala Björnsdóttir bættu tveimur mörkum til viðbótar hjá Víkingi áður en flautað var til hálfleiks.

Víkingsstúlkur skoruðu eitt mark í þeim síðari en þar var Oddný Sara að verki. 5-0 sigur staðreynd.

Völsungur vann flottan 4-0 sigur á Einherja á Húsavík.  Sindri fékk KH í heimsókn. Sindri fór með 4-2 sigur af hólmi.

Sindri 4-2 KH
Mörk Sindra: Samira Suleman x2, Jovana Milinkovic, Maria Luiza Ferreira De Macedo.
Mörk KH: Bryndís Eiríksdóttir, Glódís María Gunnarsdóttir.

Völsungur 4-0 Einherji
(Markaskorara vantar)

Tindastóll - HK
Úrslit vantar

Álftanes 1-3 Grindavík
Mark Álftaness: Stefanía Dís Oddgeirsdóttir
Mörk Grindavíkur: Ása Björg Einarsdóttir, Sigríður Emma F. Jónsdóttir, Marín Rún Guðmundsdóttir.

Fram 0-5 Víkingur R.
Mörk Víkings: Christobel Oduro, Hulda Ösp Ágústsdóttir, Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir,  Brynhildur Vala Björnsdóttir, Oddný Sara.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner