Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 30. apríl 2022 18:13
Brynjar Ingi Erluson
„Stundum eins og hann vilji láta sparka sig niður"
Arnar Gunnlaugsson og Kristall Máni
Arnar Gunnlaugsson og Kristall Máni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingurinn, Kristall Máni Ingason, hefur skemmt áhorfendum í byrjun tímabils með fótboltahæfileikum sínum en Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, segir að stundum sé best að spila bara einfalt.

Kristall var besti maður vallarins er Víkingur vann Keflavík í Víkinni á dögunum, 4-1. Hann skoraði eitt mark og lagði upp tvö í leiknum en fékk ansi oft að finna fyrir því frá varnarmönnum Keflavíkur.

Í síðari hálfleiknum fékk Kristall að líta gula spjaldið fyrir að tuða í dómaranum eftir að hafa verið sparkaður niður trekk í trekk.

„Þetta er tvíeggja sverð. Maður hefur gaman af því þegar hann tekur 'touchin' sín og sólar og skemmtir áhorfendum og sjálfum sér í leiðinni og er okkur til gagns, en hann verður líka að gera sér grein fyrir því að stundum verður að spila einnar snertingar fótbolta annars verður bara ferillinn svona," sagði Arnar við fjölmiðla.

„Ég er samt virkilega ánægður með hversu hugaður hann er þegar hann er með boltann því þegar þú ert sparkaður niður þá áttu það til að gefa smá eftir og ekki þora að fá boltann aftur og reyna sömu hlutina aftur en það er stundum eins og hann vilji láta sparka sig niður. En upp á ferilinn að gera, jú það er fínt að sóla og allt svoleiðis, en inn á milli verður þú líka stundum að spila einfalt," sagði hann ennfremur.

Finnst þetta geggjað

Kristall talaði við Fótbolta.net eftir leikinn og sagði það geggjað að vera sparkaður niður, þannig þar er kannski eitthvað til í þessu hjá Arnari.

„Já, eins og þú sást þá fékk ég gult spjald fyrir það en svona er þetta og það er bara geggjað þegar það er verið að negla mig niður. Auðvitað, það er alltaf verið að koma harkalega aftan í mann og auðvitað vill maður að þeir fái gult spjald," sagði Kristall.
Arnar: Eðlilegt að þegar þú ert 4-0 yfir að þú viljir gera tíu mörk í hverri einustu sókn
Athugasemdir
banner
banner