Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. apríl 2022 20:10
Brynjar Ingi Erluson
Tók Kjartan Henry átján mínútur að opna markareikninginn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry Finnbogason er í byrjunarliði KR í fyrsta sinn í Bestu deildinni á þessu tímabili eftir að hafa tekið út leikbann í fyrstu tveimur leikjunum en það tók hann ekki langan tíma að komast á blað.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 KR

Framherjinn knái var í banni í fyrstu tveimur leikjunum eftir að hann fékk rautt spjald í næst síðustu umferðinni gegn Víkingi á síðasta tímabili.

KR-ingar voru að fá inn eitt besta vopn sitt fyrir leikinn gegn Val í kvöld og það sannaðist því eftir átján mínútu skoraði hann fyrir KR.

Kennie Chopart kom boltanum fyrir markið og var Kjartan fyrstur allra að boltanum og stýrði honum í netið.

Valur jafnaði leikinn undir lok fyrri hálfleiks er Patrick Pedersen stýrði fyrirgjöf Birkis Más Sævarssonar í netið. Staðan 1-1.






Athugasemdir
banner
banner