Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. apríl 2022 20:45
Brynjar Ingi Erluson
Viðræður Boca og Cavani langt á veg komnar
Mynd: EPA
Úrúgvæski framherjinn Edinson Cavani mun að öllum líkindum ganga í raðir argentínska félagsins Boca Juniors í sumar en þetta kemur fram í Mirror.

Cavani, sem er 35 ára gamall, hefur lítið spilað á þessari leiktíð með Manchester United vegna meiðsla en hann skrifaði undir eins árs framlengingu á samningi sínum á síðasta ári.

Hann verður því samningslaus í sumar og ekki stendur til að framlengja við enska félagið.

Mirror greinir frá því að viðræður Cavani og Boca Juniors séu komnar langt á veg og að fátt komi í veg fyrir að hann gangi til liðs við félagið þegar glugginn opnar.

Cavani hefur skorað 2 mörk fyrir United á þessari leiktíð í tólf deildarleikjum.
Athugasemdir
banner
banner