Landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir er komin inn á í bikarúrslitaleiknum í Þýskalandi.
Lið hennar, Eintracht Frankfurt, er að spila við Wolfsburg og er staðan enn markalaus þegar búið er að flauta til hálfleiks.
Alexandra byrjaði á bekknum en kom inn á þegar um 39 mínútur voru liðnar vegna meiðsla liðsfélaga hennar. Hún er að spila inn á miðri miðjunni.
Það er spennandi seinni hálfleikur framundan en hægt er að horfa á leikinn í beinni á Youtube. Útsendinguna frá leiknum má finna hér að neðan.
Alexandra gekk í raðir Frankfurt frá Breiðablik í janúar. Hún er uppalin í Haukum í Hafnarfirði.
Sjá einnig:
Alexandra úr sama fótboltaskóla og Sara: Ákveðin og með mikið keppnisskap
Athugasemdir