Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 30. maí 2021 20:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aurier: Kominn á endastöð með Tottenham
Mynd: Getty Images
Hægri bakvörðurinn Serge Aurier vill yfirgefa herbúðir Tottenham í sumar.

Aurier hefur verið orðaður við Paris Saint-Germain í Frakklandi, en AC Milan og félög á Spáni eru einnig áhugasöm um hann.

Aurier hefur talað opinskátt um það í samtali við L’Equipe í Frakklandi að hann vilji yfirgefa Spurs.

„Allir vita að ég væri búinn að framlengja við Tottenham ef ég hefði viljað gera það. Ég er kominn á endastöð og það er kominn tími á að leita annað."

Aurier spilaði með PSG áður en hann fór til Tottenham 2017. Hann segist vilja fara aftur til París en lokar engum dyrum.
Athugasemdir
banner
banner