Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 30. maí 2021 22:15
Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Gauti: Hann er voða sorry yfir þessu
Brynjar Gauti Guðjónsson var fyrirliði Stjörnunnar í dag.
Brynjar Gauti Guðjónsson var fyrirliði Stjörnunnar í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er frekar fúlt að fá bara eitt stig þegar upp er staðið. Kannski enn einn leikurinn í sumar þar sem maður er þokkalega sáttur með frammistöðuna en uppskeran er frekar rýr," sagði Brynjar Gauti Guðjónsson varnarmaður Stjörnunnar eftir 1 - 1 jafntefli við Fylki í Árbænum í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  1 Stjarnan

Emil Atlason fékk að líta rauða spjaldið seint í fyrri hálfleik fyrir pirringsbrot úti á miðjum velli, víðs fjarri boltanum, var Brynjar Gauti svekktur út í hann?

„Ég er ekki búinn að sjá þetta aftur en hann er voða sorry yfir þessu. Við gerum allir mistök og svo lærum við af því. Svona er þessi leikur og hann þarf að læra af þessu," sagði hann.

„Mér fannst við vera með ágæt tök á leiknum 11 á móti 11 og skorum fínt mark eftir aukaspyrnu. Þeir eru ekkert að ná að skapa á okkur og svo kemur rauða spjaldið og við föllum aftar og förum að verja markið okkar. Mér fannst við gera það mjög vel, þeir eiga eitt stangarskot en voru ekki að komast í gegnum okkur. Við hefðum samt mátt nýta tækifærin okkar betur."

Nánar er rætt við Brynjar Gauta í spilaranum að ofan. Hann segir að sér hafi liðið vel á vellinum en hann er valinn maður leiksins hjá Fótbolta.net. Hann ræðir einnig tveggja vikna pásu framundan sem hann segir kærkomna enda búið að vera erfitt líkamlega og andlega undanfarið. Hann ræðir einnig afhverju úrslitin hafa ekki verið að falla og segir það ekki tengjast því sem gerist utan vallar.
Athugasemdir
banner