Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 30. maí 2021 15:30
Victor Pálsson
Fá félög sem reyndu við Alaba
Mynd: Getty Images
Það voru ekki of mörg félög sem reyndu að semja við David Alaba í ár en hann hefur leikið með Bayern Munchen í langan tíma.

Alaba ákvað fyrr á tímabilinu að kveðja Bayern í sumar og hefur gert samning við stórlið Real Madrid.

Austurríski landsliðsmaðurinn var oft orðaður við hin ýmis félög en samkvæmt honum voru fá lið sem ræddu við hann.

Að lokum ákvað Alaba að semja við Real og miðað við hans orð þá var það auðveld ákvörðun.

„Það voru ekki mörg lið sem reyndu við mig en Real Madrid var efst á listanum," sagði Alaba.

„Eins og Bayern Munchen þá er þetta eitt stærsta félag heims með mikla sögu og hefðir."

Þessi 28 ára gamli leikmaður kom til Bayern árið 2008 og spilaði alls 431 leik fyrir félagið og vann 27 titla.
Athugasemdir
banner
banner
banner