Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. maí 2021 16:06
Victor Pálsson
Sammi hjá Vestra segir Helga Mikael verstan
Helgi Mikael.
Helgi Mikael.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samúel Samúelsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Vestra, sendi Helga Mikael Jónassyni væna pillu á samskiptamiðlinum Twitter í dag.

Vestri tapaði 3-2 heima gegn Grindavík í Lengjudeildinni í dag en gestirnir skoruðu tvö mörk úr vítaspyrnum.

Sigurður Bjartur Hallsson skoraði fyrstu tvö mörk Grindvíkinga úr víti á þriðju og 61. mínútu en þriðja mark liðsins var svo sjálfsmark markvarðarins Diego Garcia.

Samkvæmt Samúel þá átti Helgi Mikael virkilega slakan leik og var formaðurinn hundfúll í leikslok.

„Helgi Mikael Jónsson er slakasti dómari sem hefur dæmt á Vestfjarðar kjálkanum!!" skrifaði Samúel á Twitter eftir leik.

Í fyrra vítinu var markmaðurinn Garcia dæmdur brotlegur en það seinna var dæmt á Nicolaj Madsen.

Þetta var annað tap Vestra í röð eftir 5-0 skell gegn Gróttu í síðustu umferð.


Athugasemdir
banner
banner