Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. maí 2021 17:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Emil spilaði 90 fyrir Padova sem er í góðum málum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Calcio Padova er liðið vann flottan sigur á Renate í umspilinu í Serie C.

Emil, sem er 36 ára gamall, byrjaði ekki bara; hann spilaði allan leiktímann.

Padova vann leikinn með þremur mörkum gegn einu. Cosimo Chiricò skoraði þrennu fyrir Emil og félaga í leiknum.

Umspillið í Serie C er langt og strangt. Þetta var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum. Seinni leikurinn fer fram á heimavelli Padova næstkomandi miðvikudag.

Emil gekk í raðir Padova en liðið var hársbreidd því að vinna sinn riðil og fara beint upp í Serie B. Emil á að baki 73 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Athugasemdir
banner
banner
banner