Kevin De Bruyne þurfti að fara af velli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gær eftir að hafa lent í samstuði við Antonio Rudiger.
De Bruyne þurfti að fara á sjúkrahús eftir samstuðið en það sást vel á honum strax á eftir, með vænt glóðarauga.
Það kom í ljós að hann hafi nefbrotnað og brákað augntóftarbein.
„Halló, ég var að koma af spítalanum, ég er nefbrotinn og með brákað augntófarbein. Það er í lagi með mig núna. Enn auðvitað vonsvikinn eftir gærdaginn en við komum sterkari til baka." Skrifaði Kevin De Bruyne á Twitter síðu sinni í morgun.
Athugasemdir