Ísland tók á móti Mexíkó í æfingarleik á AT&T vellinum í Arlington, Texas í Bandaríkjunum í nótt.
Leiknum lauk með 2-1 sigri Mexíkó. Fjórir leikmenn í byrjunarliði íslenska landsliðsins voru að byrja sinn fyrsta A-landsleik. Það voru þeir Ísak Bergmann Jóhannesson sem hafði þó þrisvar áður komið inná sem varamaður, Brynjar Ingi Bjarnason, Hörður Ingi Gunnarsson og Þórir Jóhann Helgason.
Ísland komst yfir á 14.mínútu en þá átti Birkir Már Sævarsson skot sem fór af Edson Alvarez og í netið, markið skráð sjálfsmark. Hirving Lozano leikmaður Napoli kom inná þegar hálftími var eftir af leiknum og hann skoraði bæði mörk Mexíkóa.
Rúv birti myndband af mörkunum sem sjá má hér
Athugasemdir