Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 30. maí 2021 20:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Þrennan staðreynd hjá mögnuðu liði Barcelona
Mynd: EPA
Kvennalið Barcelona bætti öðrum bikar í safn sitt - frá þessu tímabili - í kvöld.

Caroline Graham Hansen var ekki með Barcelona í kvöld en Katalóníustórveldið lét það ekki á sig fá.

Barcelona mætti Levante í úrslitaleik spænska bikarsins og gekk á lagið í fyrri hálfleik. Patri Guijarro skoraði eftir fimm mínútur og bættu Alexia Putellas og Marta Torrejón við mörkum áður en flautað var til hálfleiks.

Levante gerði vel í seinni hálfleiknum og náði að vinna sig inn í leikinn. Þær minnkuðu muninn í 3-2 áður en Alexia Putellas gerði út um leikinn.

Lokatölur 4-2 og er þrennan staðreynd hjá mögnuðu liði Barcelona á þessu tímabili; þær unnu spænsku úrvalsdeildina, Meistaradeildina og spænska bikarinn.

Sjá einnig:
Bestu leikmennirnir í mögnuðu liði Barcelona
Athugasemdir
banner
banner