Rétt í þessu var verið að draga í átta-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna. Þar eru öll átta liðin úr Bestu deildinni.
Landsliðskonurnar Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Guðný Árnadóttir sáu um að draga.
Landsliðskonurnar Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Guðný Árnadóttir sáu um að draga.
Þarna er það stærst að það verður endurtekning á úrslitaleiknum frá því í fyrra þar sem Breiðablik og Þróttur áttust við. Breiðablik vann sannfærandi sigur í úrslitaleiknum í fyrra.
Það er Reykjavíkurslagur þar sem Valur og KR eigast við, Selfoss mætir Þór/KA og ÍBV fær Stjörnuna í heimsókn.
Leikdagar eru 10. og 11. júní næstkomandi.
Átta-liða úrslitin:
Valur - KR
Selfoss - Þór/KA
ÍBV - Stjarnan
Breiðablik - Þróttur
Athugasemdir