Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 30. maí 2022 14:04
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu nýja landsliðstreyju Íslands
Icelandair
Mynd: KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands tilkynnti í dag nýja heimatreyju fyrir næstu tvö árin.

Á dögunum var lekið nýju útliti treyjunnar og fékk hún ekkert sérstaklega góð viðbrögð.

Puma sér um að framleiða treyjur fyrir íslensku landsliðin en á miðvikudag verður landsliðstreyja kvennalandsliðsins fyrir Evrópumótið tilkynnt.

Hörður Björgvin Magnússon og Jón Dagur Þorsteinsson eru fyrirsæturnar fyrir nýju treyjuna sem fylgir með fréttinni.

Dæmi nú hver fyrir sig en þessi treyja verður notuð næstu tvö árin í undankeppni Evrópumótsins og Þjóðadeildinni.

Nýja landsliðstreyjan er framleidd úr sérstöku efni sem gerir hana að léttustu og þægilegustu keppnistreyju sem PUMA hefur framleitt.


Athugasemdir
banner
banner