Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 30. júní 2018 16:57
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Úrúgvæ og Portúgal: Ronaldo mætir Suarez
Mynd: Getty Images
Úrúgvæ og Portúgal eigast við í 16-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins og hafa byrjunarliðin verið staðfest.

Úrúgvæ gerir enga breytingu á liðinu sem lagði heimamenn að velli með þremur mörkum gegn engu í úrslitaleik um toppsæti A-riðilsins.

Portúgal gerir þrjár breytingar á liðinu sem gerði 1-1 jafntefli við Íran. Ricardo Pereira kemur inn í stöðu hægri bakvarðar og Goncalo Guedes aðstoðar Cristiano Ronaldo í fremstu víglínu. Þá kemur Bernardo Silva einnig inn í liðið.

Úrúgvæ fékk ekki mark á sig í riðlakeppninni þar sem Diego Godin og Jose Maria Gimenez hafa staðið sig eins og hetjur í hjarta varnarinnar.

Úrúgvæ: Muslera; Caceres, Gimenez, Godin; Nandez, Bentancur, Torreira, Vecino, Laxalt; Suarez, Cavani.

Portúgal: Patricio; Pereira, Fonte, Pepe, Guerreiro; J. Mario, Adrien Silva, Carvalho, Bernardo Silva; Guedes; Ronaldo.
Athugasemdir
banner
banner
banner