Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 30. júní 2018 08:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Casemiro: Neymar og Ronaldo á sama "leveli" og Messi
Er Neymar einn af þremur bestu leikmönnum heims?
Er Neymar einn af þremur bestu leikmönnum heims?
Mynd: Getty Images
Miðjumaður Brasilíu og Real Madrid segir að þeir Cristiano Ronaldo og Neymar séu frá annarri plánetu, líkt og Lionel Messi.

Casemiro er einn af fáum leikmönnum í heiminum sem eru þess heiðurs aðnjótandi að fá að leika með tveimur af bestu leikmönnum heims allt árið.

Annars vegar leikur hann með Cristiano Ronaldo með Real Madrid og hins vegar leikur hann með Neymar með Brasilíu.

Allir þrír eru komnir í 16-liða úrslit á HM. Neymar og Brasilía mæta Mexíkó í 16-liða úrslitum en Ronaldo og Messi spila leiki sína í dag. Portúgal gegn Úrúgvæ og Argentína gegn Frakklandi.

Nái Ronaldo og Messi að leiða lið sín til sigurs í dag mætast þeir í 8-liða úrslitum í risa leik.

„Þeir eru þrír bestu leikmenn í heimi. Ronaldo, Messi og Neymar. Neymar getur breytt gangi leiksins hvenær sem er og þess vegna er hann einn af þremur bestu leikmönnum í heimi
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner